Leyndarmál og lygar

Garðskúrinn sem geymir leyndarmál og lygar.

Ungur maður sem hefur misst tengsl við fjölskyldu sína snýr aftur til að rifja upp gleymda bernsku sína og ástæður þess að hann stóð uppi einn. Er fjölskyldan tilbúin að horfast í augu við eigin leyndarmál og lygar? Og hvað gerðist í garðskúrnum forðum?

Um það er spurt í leikritinu GARÐSKÚRINN, eftir breka rithöfundinn Graham Greene. Leikritð verður flutt á Leikritakvöldi útvarpsins, laugardagskvöldið 11.febrúar, um kl. 20:00 á Rás 1.

Þýðinguna gerði Óskar Ingimarsson og leikstjóri er Gísli Halldórsson.

Upptakan er frá árinu 1959 og skartar mörgum af helstu leikurum þjóðarinnar þess tíma: Gísla Halldórssyni, Arndísi Björnsdóttur, Árna Tryggvasyni, Guðbjörgu Þorbjarnardóttur, Kristínu Önnu Þórarinsdóttur, Vali Gíslasyni, Ævari R. Kvaran, Brynjólfi Jóhannessyni, Áróru Halldórsdóttur, Eddu Kvaran og Guðmundi Pálssyni.

Á undan flutningi leikritsins, eða kl. 19:00, verður fluttur þáttur úr þáttaröðinni ÞAU STÓÐU Í SVIÐSLJÓSINU. Að þessu sinni fjallar Sveinn Einarsson um Helgu Valtýsdóttur leikkonu. Þátturinn var áður á dagskrá árið 1976.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku