Hlustendur leggja til efni

Síminn hringir í Útvarpsleikhúsið
Það á að útvarpa leikriti í beinni útsendingu, en andinn hefur ekki komið yfir höfundinn og hann biður hlustendur ásjár. Hann fær vísbendingar frá hlustendum sem kalla fram leikþátt. Viðbrögðin við honum láta síðan ekki á sér standa.
Þetta er efni leikritsins, ENGINN SKILUR HJARTAÐ, eftir einn merkasta höfund Íslands um miðja síðustu öld, Halldór Stefánsson, þó hann sé mörgum gleymdur í dag.
En nú gefst einstakt tækifæri á Leikritakvöldi útvarpsins, laugardagskvöldið 3. febrúar kl. 20, að kynnast þessum athyglisverða höfundi og leikverki hans sem þætti nýstárlegt enn í dag. Leikrit sem hann skrifaði sérstaklega fyrir útvarp með möguleika miðilsins í huga. Leikritsupptakan er frá árinu 1955. Leikstjóri var Einar Pálsson (Leikendaskrá má lesa hér neðar í fréttinni).
Á undan leikritinu, eða kl. 19:00, verður fluttur þáttur í þáttaröðinni „Þau stóðu í sviðsljósinu". Að þessu sinni um Ingu Þórðardóttur leikkonu. Þátturinn er frá árinu 1976 og var í umsjá Óskars Ingimarssonar.
Á eftir leikritinu, eða um kl. 21:00, verður á dagskrá þátturinn „Söngvar á sviði: Land míns föður". Í þættinum er fjallað um söngvaleikinn Land míns föður eftir Kjartan Ragnarsson og Atla Heimi Sveinsson.
Leikarar: Helgi Björnsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Aðalsteinn Bergdal, Ragnheiður Elfa Arnardóttir, Hallmar Sigurðsson, Jón Sigurbjörnsson, Gísli Halldórsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Guðrún Ásmundsdóttir, Soffía Jakobsdóttir, Guðmundur Ólafsson og Karl Guðmundsson.
Umsjón: Viðar Eggertsson. Þátturinn er frá árinu 2007.
Persónur og leikendur í leikritinu ENGINN SKILUR HJARTAÐ, eftir Halldór Stefánsson:
Unga stúlkan: Kristín Anna Þórarinsdóttir
Ungi maðurinn: Rúrik Haraldsson
Faðir hans: Lárus Pálsson
Piparjómfrúin: Gerður Hjörleifsdóttir
Faðir hennar: Þorsteinn Ö. Stephensen
Karlmannsraddir í síma: Guðmundur Jónsson og Knútur R. Magnússon
Kvenrödd í síma, vinstúlka: Helga Valtýsdóttir
Þulur: Jón Múli Árnason
Höfundurnn: Karl Guðmundsson
Landsímastúlka: Rós Pétursdóttir.
Hér má lesa athyglisverða grein eftir Örn Ólafsson um höfundinn HALLDÓR STEFÁNSSON.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







