EGILS SAGA vann Grímuna 2012



  • Prenta
  • Senda frétt

Íslensku sviðslistaverðlaunin, Gríman, voru haldin hátíðleg í Silfurbergi í Hörpu, fimmtudagskvöldið 14. júní. Veitt voru verðlaun í 18 flokkum, þar á meðal fyrir Útvarpsverk ársins 2012.

Þrjú verk voru tilnefnd til verðlaunanna og hlaut EGILS SAGA eftir Morten Cranner í leikstjórn Erlings Jóhannessonar verðlaunin.

Ingunn Ásdísardóttir þýddi leiktexta, Þórarinn Eldjárn bundið mál, Hildur Ingveldar- Guðnadóttir samdi tónlist og hljóðmeistari var Einar Sigurðsson.

EGILS SAGA var flutt í þremur hlutum af Útvarpsleikhúsi RÚV á Rás1 fyrr á árinu og er eitt viðamesta verkefni Útvarpsleikhússins á síðustu árum.

Menningarsjóður útvarpsstöðva og Tónskáldasjóður Ríkisútvarpsins styrktu verkefnið.

Mikill fjöldi leikara tók þátt í EGILS SÖGU og var þar fremstur í flokki leikara Ingvar E. Sigurðsson sem lék Egil frá barnsaldri til fullorðinsára.

Önnur verk sem tilnefnd voru sem Útvarpsverk ársins:

ÁSTAND eftir Ásdísi Thoroddsen í hljóðvinnslu Einars Sigurðssonar og leikstjórn höfundar. Gjóla ehf. framleiddi í samvinnu við Útvarpsleikhús RÚV með styrk frá Menningarsjóði Útvarpsstöðva. Verkið var flutt á Rás 1 í október sl.

FJALLA-EYVINDUR eftir Jóhann Sigurjónsson, í útvarpsleikgerð og leikstjórn Mörtu Noðdal. Verkið var flutt á Rás 1 á Nýársdag sl.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku