Dæmisögur Jesú í nýju ljósi.

Leikfélagið Hugleikur frumsýnir annað kvöld nýtt íslenskt verk eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur en Ágústa Skúladóttir leikstýrir uppsetningunni.

Efniviðurinn er sjált Nýja Testamentið og dæmisögur Jesú,  bæði þessar alþekktu um glataða soninn og miskunnsama Samverjann en einnig aðrar minna þekktar sem gjarnan fjalla um peninga og kallast þannig með áþreifanlegum hætti á við samtímann. Rætt var við Sigríði Láru og Ágústu í Víðsjá fimmtudaginn 2. febrúar en nánari upplýsingar má nálgast á vef Hugleiks.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku