Ástsælir leikarar og hjónaskilnaður

Þegar þau stigu á svið, fór ekki milli mála hve áhorfendur höfðu miklar mætur á þeim.

Það er ekki ofsögum sagt að á sinni tíð hafi þau Gunnþórunn Halldórsdóttir og Friðfinnur Guðjónsson verið í hópi ástsælustu leikara landsins.

Þau voru meðal stofnenda Leikfélags Reykjavíkur 1897 og voru elskuð og dáð af leikhúsgestum, jafnt fyrir framgöngu sína í leikritum sem sýnd voru í Iðnó sem og revíum sem sýndar voru á öðrum leiksviðum bæjarins, á fyrri hluta síðustu aldar.

Á Leikritakvöldi útvarpsins, laugardagskvöldið 3. desember kl. 19, verður fluttur þáttur úr þáttaröðinni Þau stóðu í sviðsljósinu, frá 1976, um þessa tvo dáðu leikara Íslands fyrri tíðar. Umsjón með þættinum hafði Óskar Ingimarsson.

Að þættinum loknum, eða um kl. 20:05, hefst flutningur leikritsins Þessvegna skiljum við, eftir Guðmund Kamban í þýðingu Karls Ísfelds og leikstjórn Helga Skúlasonar.

Efni leikritsins er á þessa leið: Fjölskyldan Thorlacius er af íslensku bergi brotin. Meiður ættarinnar er ekkjufrú Sylvía. Sjónarmið hennar og sonar hennar, Eggerts, fjölskylduföðurins, er að orð skulu standa. Thorlacius svíkur ekki, gengur ekki á bak orða sinna. Sonurinn Karl vill skilja öðru sinni. Spurt er, á skynsemin að ráða yfir tilfinningunum? Hver er kjarni ástarinnar?


Persónur og leikendur:
Frú Sylvía Thorlacius: Arndís Björnsdóttir
Eggert Thorlacius: Þorsteinn Ö. Stephensen
Frú Dagmar: Helga Valtýsdóttir
Karl: Gísli Halldórsson
Baldvin, sonur þeirra: Rúrik Haraldsson
Sigþrúður, dóttir þeirra: Helga Bachmann
Gerða Sigríður Hagalín
Louise: Þóra Friðriksdóttir
Dr. Viggo Mohr: Róbert Arnfinnsson
Próf. Axel Thomsen: Haraldur Björnsson
Frú Stefanía Thomsen: Guðbjörg Þorbjarnardóttir
Ungfrú Nielsen: Guðrún Stephensen
Anna, stofustúlka: Guðrún Blöndal
Fiðluleikur: Óskar Cortes

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku