Leik ÍBV og Selfoss frestað



  • Prenta
  • Senda frétt

Viðureign ÍBV og Selfoss í 12. umferð úrvalsdeildar karla sem átti að hefjast í Vestmannaeyjum í dag klukkan 16 hefur verið frestað vegna veðurs. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Knattspyrnusambandi Íslands.

Lið Selfoss átti að fara til Eyja með Herjólfi sem siglir ekki vegna mikillar ölduhæðar að því er fram kemur á vefsíðunni eimskip.is. Leikurinn verður í Vestmannaeyjum á morgun klukkan 18.

Einn leikur verður í kvöld klukkan 19.15 þegar FH og Grindavík mætast suður með sjó.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku