Leiðtogi Skínandi stígs handtekinn

Félagi Artemio, leiðtogi Skínandi stígs. Mynd: AFP PHOTO/IDL

Foringi hryðjuverkasamtakanna Skínandi stígs hefur verið handtekinn. Hann er þekktur undir nafninu félagi Artemio og fannst illa særður eftir átök við stjórnarhermenn djúpt í myrkviðum Perú.

Félagar í Skínandi stíg kenndu sig við maóisma og ógnuðu stjórnvöldum í Perú á níunda og tíunda áratug síðusta aldar. Á seinni árum hefur mjög af þeim dregið og liðsmönnum fækkað. Þeir sem eftir eru tengjast mjög sölu og vinnslu á kókaíni. Forseti Perú Ollanta Humala sagði nú væri sigur unninn. Artemio sem heitir Florindo Eleuterio Flores, var handtekinn í héraði sem er miðstöð viðskipta með kókaín í Perú. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku