Launsonur Hitlers með franskri snót

Nasistaleiðtoginn Adolf Hitler átti launson með franskri unglingsstúlku þegar hann var hermaður í fyrri heimsstyrjöldinni samkvæmt nýjum gögnum sem franska tímaritið Le Point hefur birt.

Þar kemur fram að Charlotte Lobjoie hafi viðurkennt það á dánarbeðinu fyrir syni sínum, Jean-Marie Loret, að faðir hans væri einn alræmdasti einræðisherra sögunnar. Loret hafi ekki fyrr en þá fengið að vita nokkuð um hver væri faðir hans.

Hann rannsakaði fortíð sína og móður sinnar í þaula. Hann fékk vísindamenn til að sannreyna að hann og Hitler væru í sama blóðflokki og hefðu sömu rithönd. Einnig þykja ljósmyndir sýna að þeir hafi verið nokkuð líkir í útliti. Loret gaf út bók um meint faðerni sitt árið 1981. Hann lést fjórum árum síðar, þá 67 ára að aldri.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Evrópa, Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku