Lárus Welding ákærður

Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákærur á hendur Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, og öðrum manni. Ákæran tengist svokölluðu Vafningsmáli.
Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis og öðrum manni var fyrir helgi birt ákæra frá sérstökum saksóknara. Ákæran tengist eignarhaldsfélaginu Vafningi, samkvæmt upplýsingum fréttastofu.
Vafningur fékk háar fjárhæðir lánaðar í aðdraganda hrunsins, þar á meðal um 30 milljarða frá Sjóvá og frá Glitni í febrúar árið 2008. Tilgangurinn var að endurfjármagna stórt erlent lán sem eignarhaldsfélög í eigu Milestone og Einars og Benedikts Sveinssona höfðu tekið hjá bandarískum banka - Morgan Stanley. Sjóvá var á þessum tíma í eigu Milestone. Embætti sérstaks saksóknara gerði umfangsmikla húsleit í júlí árið 2009, meðal annars hjá Sjóvá og Milestone. Ákæran sem birt var fyrir helgi, kann að byggja á gögnum sem þá var aflað. Lárus Welding hefur tvívegis verið yfirheyrður af starfsmönnum sérstaks saksóknara. Í fyrra skiptið í nóvember í fyrra og síðan í byrjun þessa mánaðar. Seinna málið mun ekki tengjast ákærunni nú.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







