Landsframleiðsla jókst um 2,4%



  • Prenta
  • Senda frétt

Landsframleiðsla jókst um 2,4 prósent að raungildi milli fjórða ársfjórðungs 2011 og fyrsta ársfjórðungs 2012. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 3,4 prósent, sem Hagstofan segir að skýrist að mestu af mikilli aukningu birgða

Fjárfestingin dróst hins vegar saman um 18,6 prósent. Útflutningur dróst saman um 5,6 prósent og innflutningur um 5,2 prósent á sama tímabili. Einkaneyslan jókst um 0,3 prósent og samneyslan um 0,4 prósent.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku