Togarinn Júlíus Geirmundsson landaði í gær fullfermi af makríl. Þetta er í fyrsta skipti sem ísfirskt skip kemur með makríl að landi. Bæjarins besta segir farminn vera 228 tonn og að allur makrílkvóti útgerðarinnar hafi náðst í þessari einu veiðiferð. Makríllinn er hausaður og frystur um borð og fer að líkindum allur beint til útflutnings.
frettir@ruv.is