Lagerbäck: Hefðum getað gert betur

Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari fagnaði fyrsta sigri íslenska knattspyrnulandsliðsins undir hans stjórn þegar liðið lagði Færeyjar í vináttulandsleik 2-0.
„Það mikilvægasta er að við sigruðum og ég er mjög ánægður með það en ef við skilgreinum leikinn þá hefðum við getað gert betur á köflum. Leikmenn sýndu þó gott viðhorf og 2-0 sigur er 2-0 sigur.“ sagði Lagerbäck.
Aðspurður um af hverju Eiður Smári Guðjohnsen og Grétar Rafn Steinsson hafi fengið að spila í leiknum umfram aðra leikmenn sem ekki eru án félags sagði Lars:
„Ég vildi sjá hvernig þeir kæmu út og hvernig ástandi þeir eru í. Það var mikilvægt fyrir mig að sjá hvernig þeir kæmust frá því að spila í 20 mínútur í kvöld. Ég get núna gert mér betur grein fyrir því hvar þeir standa ef þeir verða byrjaðir að spila í næstu viku."
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













