Læti á danska þinginu

Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn, danska þinghúsið. Mynd: Shutterstock.

Nýbakaðir þingmenn í Danmörku telja að þingmenn þar í landi hegði sér eins og ódæl leikskólabörn í umræðum. Þeir tali ótuktarlega hver til annars og leggi samstarfsmenn í einelti eins og örgustu hrekkjusvín.

Nýliðum í Kristjánsborgarhöll líst ekki á blikuna og þeir undrast oft samskipti þingmanna sem einkennist oftar en ekki af fullmikilli hörku. Mogens Lykketoft, forseti þingsins segir allt of mikið um páfagaukagarg og lýðskrum í þingsalnum. Almenningur í Danmörku er þreyttur á orðaskakinu. En hluti þingmanna segir þetta ekki sanngjarnt. Í þinginu sé tekist á um alvörumál. 



Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku