LA Clippers vann í framlengingu

Chris Paul hefur komið með ferska vinda inn í lið Los Angeles Clippers.
Los Angeles Clippers vann Orlando Magic á útivelli í spennuleik í NBA-deildinni í körfubolta í Bandaríkjunum í gærkvöld.
Clippers hafði betur eftir framlengingu, 107-102, en liðið hefur spilað afar vel á þessu tímabili eftir rýra uppskeru undanfarin ár. Þetta var fjórði útisigur Clippers í röð í deildinni en Chris Paul skoraði 29 stig í leiknum í gær. Hjá Orlando átti Dwight Howard stórleik og skoraði 33 stig auk þess að taka 14 fráköst. Þá var Portland Trailblazerzs nálægt því að leggja topplið Oklahoma City Thunder að velli en Kevin Durant og félagar í Oklahoma unnu 111-107 í framlengdum leik. Durant skoraði 33 stig fyrir Oklahoma en hjá Portland var LaMarcus Aldridge með 39 stig.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







