Kynþáttaníð í leik Króatíu og Ítala
Fyrst birt: 16.06.2012 15:37, Síðast uppfært: 16.06.2012 15:37
Flokkar: Erlent

Alþjóðaknattspyrnusambandið kannar nú hvort grípa eigi til refsiaðgerða gegn Króötum, vegna kynþáttaníðs á Evrópumótinu í knattspyrnu. Í leik Króatíu gegn Ítölum, veittust stuðningsmenn króatíska liðsins að einum leikmanni Ítala, sem er svartur á hörund.
Áhorfendurnir gerðu apahljóð þegar hann var nærri, auk þess sem fregnir herma að banana hafi verið kastað inn á völinn.
Í yfirlýsingu frá króatíska knattspyrnusambandinu, er framkoma sumra áhangenda liðsins fordæmd, en farið fram á að liðinu verði ekki refsað.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












