Kynferðisbrotamenn fá skrítna samúð

Maðurinn var dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Talskona Stígamóta segir að einkennilegrar samúðar gæti með mönnum sem brjóta gegn börnum. Hún furðar sig á því að í dómi sem féll í kynferðisbrotamáli gær, sé það sérstaklega tiltekið að hann sé vel gerður maður.

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í gær karlmann í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára pilti. Maðurinn, sem starfaði sem framhaldsskólakennari, greiddi piltinum tvívegis fyrir kynferðismök. Í dómnum er tekið tillit til skýlausar játningar mannsins og þess hvernig hann hefur unnið úr sínum málum. Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir þetta ekki í takt við alvarleika brotsins.

„Mér finnst við sjá það aftur og aftur hvað það gætir mikillar samkenndar með þessum mönnum. Og í þessum dómi er sérstaklega tekið fram að maðurinn sé vel gerður. Er þeim frekar heimilt að hafa kynmök við börn og kaupa af þeim vændi?“ spyr Guðrún. Hún segir þetta einkennilega samúð. Í dómnum er vitnað í læknisvottorð geðlæknis sem telur manninn vel gefinn. Hann hafi freistast til að leita eftir samskiptum við aðra karlmenn og í kjölfarið verið afhjúpaður og misst vinnuna. Þá hafi hann unnið í sínum málum, til að mynda farið í áfengismeðferð.

„Það er svona næstum því regla, í þeim málum sem að okkur snúa á Stígamótum, að þegar menn eru kærðir þá skella þeir sér í meðferð og það hefur alltaf góð áhrif á dómara,“ segir Guðrún. „Mér finnst svoltið sérstakt hvað dómurinn er snöggur að taka tillit til þessara einkennilegu þátta.“

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku