Kviknaði í á Siglufirði
Fyrst birt: 09.02.2012 06:16, Síðast uppfært: 09.02.2012 06:16

Slökkviliðsmaður að störfum. Safnmynd.
Eldur kom upp í íbúðarhúsi á Siglufirði klukkan fjögur í nótt. Fjögurra manna fjölskylda var heima við en tókst að koma sér út þegar eldsins varð vart.
Slökkviliðið á Siglufirði var fljótt á staðinn og réði niðurlögum eldsins. Hann var bundinn við vaskahús og virðist hafa kviknað út frá rafmagnstæki.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







