Kvennasveitin efst Norðurlandaþjóða

Bæði íslensku liðin unnu viðureignir sínar í lokaumferð Ólympíuskákmótsins í Istanbúl í Tyrklandi í dag.
Kvennaliðið vann góðan 3-1 sigur á Albaníu. Lenka Ptácníková, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Tinna Kristín Finnbogadóttir unnu sínar skákir en Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir tapaði. Ísland endaði í 51. sæti en var fyrirfram raðað í 62. sæti. Kvennasveitin varð jafnframt efst Norðurlanda og er þar með óopinber Norðurlandameistari kvenna.
Liðið í opnum flokki vann sveit Úrúgvæ 2,5-1,5. Henrik Danielsen og Þröstur Þórhallsson unnu sína leiki, Hjörvar Steinn Grétarsson gerði jafntefli en Hannes Hlífar Stefánsson tapaði. Ísland endaði í 47. sæti í opnum flokki og í 4. sæti Norðurlandaþjóðanna en fyrirfram var liðinu raðað í 51. sæti.
Armenar urðu Ólympíumeistarar í opnum flokki en Rússar sigruðu í kvennaflokki.
Nánar má lesa um mótið á vefsíðunni skák.blog.is.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is










