Kristján fór í gegnum niðurskurðinn

Flokkar: Golf, Íþróttir


  • Prenta
  • Senda frétt

Íslenski kylfingurinn Kristján Þór Einarsson úr GK komst í gegnum niðurskurðinn á opna breska áhugamannamótinu í Skotlandi.

Kristján lék fyrsta hring í gær á pari en annan hring í dag á einu höggi undir pari og er því á samtals einu höggi undir pari. Hann er nú í sjöunda sæti á mótinu ásamt sjö öðrum kylfingum og komst því örugglega í gegnum niðurskurðinn. Á morgun tekur við holukeppni hjá þeim sem náðu í gegnum niðurskurðinn og mætir Kristján Portúgalanum Ricardo Melo Gouveia í 64 manna úrslitum.

Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum var einnig á meðal keppenda á mótinu en hann var í 92. sæti á samtals fimm höggum yfir pari eftir annan hring og komst því ekki í gegnum niðurskurðinn.  

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku