Kristinn dæmir úrslitaleikinn

Knattspyrnudómarinn Kristinn Jakobsson mun dæma úrslitaleikinn á La Manga-æfingamótinu á Spáni.

Norska knattspyrnusambandið sér um framkvæmd mótsins og bauð Kristni að dæma en honum til aðstoðar eru Birkir Sigurðarson og Smári Stefánsson. FC Kaupmannahöfn og Spartak Moskva spila til úrslita en með fyrrnefnda liðinu leika varnarmennirnir Sölvi Geir Ottesen og Ragnar Sigurðsson. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku