Krafðist þess að vera látinn laus
Fyrst birt: 06.02.2012 14:06, Síðast uppfært: 06.02.2012 15:02

Breivik mætir fyrir réttinn. Mynd: Nordic Photos/AFP
Norski fjöldamorðinnginn Anders Behering Breivik krafðist þess fyrir rétti í Ósló í dag að verða sleppt úr haldi.
Hann viðurkenndi að hafa orðið 77 manns að bana í fyrrasumar. Þó bæri ekki að refsa sér fyrir það þar sem hann ætti í stríði. Hann kvaðst berjast fyrir þá sem hann kallaði frumbyggja í Noregi. Að því er kemur fram á fréttavef Verdens gang útskýrði hann rólegri röddu í réttarsalnum að árásirnar Í Ósló og Útey 22. júlí í fyrra hefði hann framið í forvarnarskyni, til að koma í veg fyrir að múslimar legðu Noreg undir sig.
Dómari við þingréttinn í Ósló tekur um það ákvörðun í dag hvort fjöldamorðinginn skuli sitja áfram í gæsluvarðhaldi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Norski fjöldamorðinginn í réttarsal





