Krafa um skotheldan rökstuðning

Grímsstaðir á Fjöllum með Herðubreið í baksýn.
Síðustu misserin hafa fjölmargir bent á bæði neikvæðar og jákvæðar hliðar fyrirhugaðra framkvæmda Huangs Nubos. Þó ekkert sé enn fast í hendi hefur margs konar framtíðarsýn verið dregin upp.
Samráðshóps ríkisstjórnarinnar bíður töluvert verk; eigi hún að geta farið í gegnum allar hliðar umdeilds Grímsstaðamáls Huangs Nubos - og skila af sér niðurstöðu í haust.
Mikil tækifæri
Margir segja mikil tækifæri felast í því að leigja Huang land fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu - þannig hafa margir sveitarstjórnarmenn á Norður- og Austurlandi bent á að þessar hugmyndir samræmist vel stefnu sveitarfélaganna um atvinnuuppbyggingu sem er umhverfisvæn, arðsöm, skapi ný störf og ýti undir fólksfjölgun.
Fjármagn til að byggja upp ferðaþjónustu til jafns við stóriðju hafi stórlega vantað - þó litið sé til ferðaþjónustunnar sem mikilvægasta hluta íslensk atvinnulífs til framtíðar.
Kallað eftir stefnumótun
Þá hafa stjórnvöld gjarnan talað fyrir mikilvægi þess að laða til landsins erlenda fjárfestingu - atvinnulífið hefur og kallað eftir skýrri stefnumótun í þeim efnum. Bent hefur verið á að íslenska hagkerfið sé einhæft, fjárfestingar í lágmarki og vinnubrögð stjórnsýslunnar matskennd.
Flest ríki reyni að laða til sín fjárfestingar með markvissum hætti. Eigi að bæta lífskjör hér á landi eftir hrun eigi Ísland að gera slíkt hið sama.
Hugmyndirnar óljósar
Aðrir hafa þó orðið tortryggnir vegna áhuga Huangs. Efast hefur verið um bolmagn hans til að standa undir fjárfestingum af þessu tagi, bakgrunnur hans þykir torkennilegur og fyrirætlanir hans eru tengdar fréttum af áhuga meðal annars Kínverja á uppbyggingu stórskipahafnar og yfirráða á Norðurslóðum. Úr öllum áttum heyrist að hugmyndir hans séu óljósar - jafnvel óraunhæfar.
Margar spurningar
Spurt hefur verið um starfsmannamál, búsetu starfsmanna og styrkingu innviða á svæði sem er ekki tengt dreifikerfi raforku, þar sem kyndingarkostnaður er mjög hár, með malarvegi sem fyllast af snjó á veturna og gömlum flugvelli. Óttast er að stjórnvöld og sveitarfélög taki fjárhagslega áhættu og skuldbindi sig til einhvers sem þau geti ekki hætt við.
Hvort sem niðurstaðan verður svo af eða á mun nefndin verða krafin um skotheldan rökstuðning.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













