Kosningavakan hefst klukkan 22

Kosningavakan undirbúin


  • Prenta
  • Senda frétt

Kosningavaka RÚV hefst í sjónvarpinu klukkan 22. Von er á fyrstu tölum fyrir klukkan hálf ellefu og verða þær birtar jafnóðum í beinni útsendingu. Forsetaframbjóðendurnir koma í sjónvarpssal ásamt öðrum góðum gestum og fréttamenn RÚV verða á ferðinni.

Kosningavökur RÚV eru í raun þrjár. Kosningavaka hefst í útvarpinu á Rás tvö strax að loknum útvarpsfréttum klukkan tíu auk þess sem fjölbreytt umfjöllun um kosningarnar verður hér á vefnum www.ruv.is. 

Þá er einnig hægt að fylgjast með nýjustu fréttum á facebook síðu fréttastofunnar. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku