Kóreskum konum rænt á Sínaí-skaga

Klaustur heilagrar Katrínar á Sínaí-skaga. Mynd:AFP

Vopnaðir bedúínar á Sínaí-skaga rændu í dag þremur suður-kóreskum konum sem voru þar á ferðalagi. Konurnar voru á leið frá klaustri heilagrar Katrínar til Sharm el-Sheikh þegar þeim var rænt.

Mannræningjarnir krefjast þess að ættmenn þeirra sem eru í haldi yfirvald verði látnir lausir í skiptum fyrir konurnar. Bedúínar á Sínaí rændu tveimur bandarískum konum og leiðsögumanni þeirra í síðustu viku og skömmu áður 25 kínverskum verkamönnum, en slepptu þeim skömmu síðar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Asía, Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku