Khedira sló í gegn með þýska landsliðinu á heimsmeistarakeppninni í sumar. Hann hefur leikið allan sinn feril með Stuttgart og er talið að spænska liðið hafi greitt um 12 milljón evrur fyrir kappann, eða sem nemur 1,9 milljörðum króna. Khedira lék sinn fyrsta landsleik í september á síðasta ári og var ekki talið líklegt að hann myndi taka mikinn þátt í heimsmeistaramótinu. Meiðsli Michael Ballack gerðu það hins vegar að verkum að Khedira var hent út í djúpu laugina og stóð hann sig með slíkri prýði að Jose Mourinho fékk hann til liðs við Real Madrid.
frettir@ruv.is