Keflavík vann ÍBV í Eyjum

Fylkismenn unnu Val á Hlíðarenda í kvöld - Mynd: Eva Björk


  • Prenta
  • Senda frétt

16. umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu hófst í kvöld með fjórum leikjum.

Selfoss sigraði Grindavík 4-0 suður með sjó. Jón Daði Böðvarsson, Jon André Röyrane, Tómas Leifsson og Viðar Örn Kjartansson skoruðu mörk Selfyssinga.

Keflavík lagði ÍBV 1-0 á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Guðmundur Steinarsson skoraði sigurmark Keflvíkinga snemma í fyrri hálfleik.

Fylkir vann Val 2-1 á Hlíðarenda. Elís Rafn Björnsson skoraði fyrir Fylki auk þess sem Jónas Tór Næs, leikmaður Vals, skoraði sjálfsmark en Rúnar Már S. Sigurjónsson gerði mark Vals.

Þá vann Fram 3-2 heimasigur á Breiðabliki á Laugardalsvelli. Hólmbert Aron Friðjónsson, Kristinn Ingi Halldórsson og Almarr Ormarsson skoruðu fyrir Framara en Arnar Már Björgvinsson og Nichlas Rohde gerðu mörk Blika.

Umferðinni lýkur með tveimur leikjum á fimmtudag en þá mætast FH og KR í Kaplakrika og ÍA tekur á móti Stjörnunni á Akranesi.

Staðan í deildinni

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku