Keflavík með öruggan sigur á Fjölni

Mynd: Eva Björk

Keflavík sigraði Fjölni örugglega 93-69 í Grafarvogi í lokaleik 22. umferðar í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik í dag.

Brittney Jones skoraði 22 stig og tók 8 fráköst fyrir Fjölni í leiknum og Jessica Bradley var með 18 stig og 5 fráköst en Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 30 stig fyrir Keflavík og Jaleesa Butler 24 stig ásamt því að taka 11 fráköst.

Keflavík er efst í deildinni með 36 stig og hefur fjögurra stiga forystu á Njarðvík sem er með 32 stig. Haukar og KR hafa 24 stig og Snæfell 22 stig í fimmta sæti, Valur er með 16 stig í sjötta sæti, Hamar í sjöunda sæti með 12 stig en Fjölnir situr á botni deildarinnar með 10 stig.
 
Heil umferð er á dagskrá miðvikudaginn 22. febrúar. Þá mætast Fjölnir og Valur í Grafarvogi, Keflavík fær Hamar í heimsókn, Narðvík tekur á móti KR og Snæfell og Haukar eigast við í Stykkishólmi.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku