Katrín skoraði í sigri Kristianstad
Fyrst birt: 30.06.2012 20:43, Síðast uppfært: 30.06.2012 20:43

Katrín Ómarsdóttir skoraði eitt af mörkum Kristianstad í dag
Katrín Ómarsdóttir skoraði eitt mark fyrir Kristianstad sem vann Örebro 4-1 í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í Svíþjóð í dag. Katrín fór af leikvelli á 70. mínútu en Sif Atladóttir lék allan leikinn fyrir Kristianstad líkt og Edda Garðarsdóttir í liði Örebro.
Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar lið Kristianstad sem er nú í fjórða sæti deildarinnar með 19 stig eftir 11 leiki en Örebro er í því tíunda með 10 stig.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












