Katrín skoraði fyrir Kristianstad

Katrín Ómarsdóttir skoraði fyrir Kristianstad í dag
Katrín Ómarsdóttir skoraði eitt mark í 3-1 sigri Kristianstad á Vittesjö í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í Svíþjóð í dag. Katrín og Sif Atladóttir voru báðar í byrjunarliði Kristianstad og lék Sif allan leikinn en Katrín fór af velli undir lok leiks. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar Kristianstad.
Guðbjörg Gunnarsdóttir og Katrín Jónsdóttir léku allan leikinn fyrir Djurgården sem vann AIK 2-1 og Edda Garðarsdóttir var sömuleiðis allan tímann í liði Örebro sem lagði Jitex 1-0. Þá var Hallbera Guðný Gísladóttir allan tímann á bekknum hjá Piteå sem tapaði 5-1 fyrir Tyresö.
Þóra Björg Helgadóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir leika með liði sínu Malmö gegn Linköping á þriðjudag.
Eftir leiki dagsins er Kristianstad í fimmta sæti með 16 stig, Piteå er í sjöunda sæti með 13 stig, Örebro í tíunda sæti með 10 stig og Djurgården í því ellefta með 6 stig.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













