Katrín kærir myndbirtingu

Katrín hertogaynja af Cambridge. Mynd: NordicPhotos/AFP.


  • Prenta
  • Senda frétt

Katrín, hertogaynjan af Cambrigde, og eiginmaður hennar Vilhjálmur hertogi hafa ákveðið að kæra franska tímaritið Closer fyrir að birta myndir af Katrínu berbrjósta. Myndirnar voru teknar af hjónunum þegar þau voru í sumarfríi í Frakklandi.

Tímaritið er kært fyrir að brjóta gegn friðhelgi einkalífsins. Ritstjóri Closer segir að parið hafi sést utan af götu. Myndirnar séu auk þess ekkert til að hneykslast yfir, á þeim megi sjá Katrínu njóta sólarinnar berbrjósta eins og megi sjá milljónir annarra kvenna gera á sólarströndum. Talsmaður bresku konungsfjölskyldunnar segir Vilhjálm og Katrínu vera miður sín vegna myndbirtingarinnar og að ekkert geti réttlætt hana.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku