Ólafur Þórðarson fallinn frá
Fyrst birt: 05.12.2011 20:27, Síðast uppfært: 05.12.2011 20:49

Ólafur Þórðarson tónlistarmaður lést um helgina, en hann komst aldrei til meðvitundar eftir að hann varð fyrir árás fyrir rúmu ári síðan.
Til minningar um Ólaf sýndum gamlar svipmyndir af Ólafi og félögum hans í Ríó Tríó, ásamt síðustu sjónvarpsupptökunni sem til er af honum. Hún er síðan í október í fyrra, þegar Kastljósið fór á æfingu hjá Ríó Tríó vegna tónleika sem haldnir voru skömmu síðar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
KastljósTilkynna um bilaða upptöku







