Nýtt frumvarp til barnalaga

Nýtt frumvarp til barnalaga var lagt fram á Alþingi. Mörg ákvæði þess eru óumdeild og talin verða til að bæta núgildandi lög en um meðferð yfirvalda á forræðismálum er þó deilt.

Í drögum af frumvarpinu var áður gert ráð fyrir því að hægt yrði að dæma foreldra til að fara sameiginlega með forræði yfir börnum sínum, en það mun ekki verða í nýju frumvarpi auk þess sem slík ákvæði eru í lögum allra nágrannaríkjanna. Þess í stað verður gert ráð fyrir því að ná sáttum milli foreldra í svokallaðri sáttameðferð til að tryggja að sátt náist milli foreldra barns. Með þeirra sem gagnrýna þetta eru félag fólks um foreldrajafnrétti. Unnur Birna Vilhjálmsdóttir varaformaður félagsins settist hjá Helga.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku