Mikilvægi skyndihjálpar
Fyrst birt: 13.02.2012 20:28, Síðast uppfært: 13.02.2012 20:28

Takturinn í hinu forna lagi Öxar við ána getur skipt sköpum þegar beitt er hjartahnoði á manneskju sem er í hjartastoppi.
Um 200 manns fara í hjartastopp á Íslandi á hverju ári. Hver sekúnda er dýrmæt þegar kemur að endurlífgun og það skiptir mjög miklu máli að hnoða og blása í einstakling þar til bráðaliðar koma á staðinn. Það hefur margoft bjargað mannslífum. Þeir Birgir Finnsson varaslökkviliðsstjóri og Hlynur Höskuldsson bráðatæknir voru gestir Jóhannesar og ræddu endurlífgun en fyrst sáum hvernig lagið Öxar við ána hjálpar til við hjartahnoð og hvað skiptir máli þegar hjartahnoði er beitt.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
KastljósTilkynna um bilaða upptöku







