Líflegt hjá íslenskum esperantistum

Alþjóðamálið esperantó var samið af pólskum augnlækni, Ludovic Zamenhof, á seinni hluta nítjándu aldar.

Það náði fljótt þó nokkurri útbreiðslu, þar á meðal hér á Íslandi. Nú er íslenska esperantóhreyfingin farin að undirbúa alþjóðaþing esperantista sem verður haldið í Reykjavík á næsta ári og hyggst bjóða hverjum þeim sem áhuga hefur að læra tungumálið, en það ku vera einstaklega auðvelt þar sem málfræðin er án undantekninga og orðaforðinn lítill. Kastljós hitti forsvarsmenn esperantohreyfingarinnar og forvitnaðist um starfsemina.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka