Hlynur Jónsson um Dróma
Fyrst birt: 22.02.2012 20:36, Síðast uppfært: 22.02.2012 20:36

Fjölmargar kvartanir hafa borist umboðsmanni skuldara og fleiri embættum vegna starfshátta Dróma þar sem skuldarar saka félagið um ófagleg vinnubrögð og óbilgirni.
Fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra sagði í Kastljósi að hann vildi sjá Fjármálaeftirlitið taka hart á kvörtunum vegna Dróma en FME staðfestir að eftirlitið hafi fengið talsverðan fjölda kvartana vegna félagsins. Hlynur Jónsson, formaður Spron og Frjálsa fjárfestingabankans settist hjá Jóhannesi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







