Gærukollurinn Fuzzy
Fyrst birt: 09.02.2012 20:30, Síðast uppfært: 09.02.2012 20:30

Gærukollurinn Fuzzy var vinsælasta fermingargjöf stúlkna upp úr 1970.
Sigurður Már Helgason bólstrari er hugmyndasmiður kollsins og býr hann til í bílskúrnum. Kollurinn hefur farið víða og verið til sýnis á hinum ýmsu hönnunarsýningum. Þegar Kastljós ætlaði að hitta á Sigurð til að taka viðtal um kollinn var ekki hlaupið að því - hann fer í sundleikfimi, hann syngur í kór og kennir leikfimi. Margrét Erla og Benedikt Ketilsson hittu Sigurð á dögunum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
KastljósTilkynna um bilaða upptöku







