Karl í haldi grunaður um manndráp

Mynd: Þórgunnur Oddsdóttir.

Kona á fertugsaldri fannst látin í húsi í Hafnarfirði í morgun. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að karlmaður á þrítugsaldri sé í haldi lögreglunnar, grunaður um að hafa orðið konunni að bana.

Maðurinn kom sjálfur á lögreglustöð í morgun og greindi frá atviki sem hafði átt sér stað á heimili hans í Hafnarfirði. Hann var í annarlegu ástandi.

Framburður hans var um margt óljós en strax var haldið heim til mannsins og þar fannst kona á fertugsaldri. Hún var látin þegar að var komið en á henni voru sjáanlegir áverkar. Hún var þá búin að vera látin í nokkurn tíma. Konan var gestkomandi á heimili mannsins en þau höfðu þekkst um hríð. Lögreglan lagði hald á eggvopn. Maðurinn sem nú er í haldi hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Rannsókn málsins er á frumstigi og lögreglan veitir ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku