Karl á áttræðisaldri í haldi
Fyrst birt: 10.02.2012 18:26, Síðast uppfært: 10.02.2012 19:35

Karl á áttræðisaldri er í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, grunaður um aðild að sprengjumálinu svokallaða.
Maðurinn var handtekinn í dag en lögregla hefur jafnframt lagt hald á ýmsan búnað sem tengist áðurnefndu máli. Þá er bíll mannsins sömuleiðis í vörslu lögreglu. Ökutækið er sömu gerðar og lýst var eftir, það er hvítur sendiferðabíll. Tveir aðrir vooru handteknir í dag en þeim hefur nú báðum verið sleppt. Fjölmargir hafa verið kallaðir til skýrslutöku undanfarna daga. Lögregla hefur unnið sleitulaust að málinu frá því að það kom upp á þriðjudaginn í síðustu viku, enda er það litið mjög alvarlegum augum hjá lögreglu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Menn handteknir vegna sprengju
Sprengja við Hverfisgötu
Viðbúnaður í miðborginni - myndband





