Kári Steinn fljótastur

Ólympíufarinn Kári Steinn Karlsson kom fyrstur í mark í Ármannshlaupinu í kvöld


  • Prenta
  • Senda frétt

Langhlauparinn Kári Steinn Karlsson kom fyrstur í mark í Ármannshlaupinu sem þreytt var í kvöld en hlaupið er 10 km langt og hluti af Sumarhlaupamótaröðinni.

Ræsing og endamörk hlaupsins voru við Sundahöfn en keppendur hlupu eftir Sæbrautinni að tónlistarhúsinu Hörpu þar sem þeir snéru við og hlupu til baka. Kári Steinn tók strax í upphafi afgerandi forystu og kom í mark á 30 mínútum og 34 sekúndum. Hann undirbýr sig nú af kappi fyrir keppni í Maraþoni á Ólympíuleikunum sem hefjast í London í lok mánaðarins.

Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni ræsti hlaupið en hún verður, líkt og Kári Steinn, á meðal þátttakenda á Ólympíuleikunum í sinni grein.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku