Kanna bremsuskilyrði á flugbraut

Áður en flugvélar lenda þarf að vera ljóst hvernig bremsuskilyrði eru á vellinum.

Það gengur á með éljum á Ísafirði og starfsmenn flugvallarins eru að gera flugbrautina klára fyrir lendingu áætlunarflugs frá Reykjavík. Mikilvægur hluti undirbúningsins er að prófa bremsuskilyrði á brautinni. Það er gert á gömlum, sérútbúnum SAAB 900.

Veigar Þór Guðbjörnsson flugvallarvörður gefur í á brautinni og prófar bremsuskilyrðin sem eru með besta móti, þó að brautin líti út fyrir að vera hál. Landinn fékk að sitja í. 

Vertu vinur Landans á Facebook.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku