Kærir Snorra til lögreglu

Brekkuskóli á Akureyri

Pétur Maack, sálfræðingur á Akureyri, hefur kært Snorra Óskarsson, kennara í Brekkuskóla á Akureyri, til lögreglu vegna bloggskrifa Snorra gegn samkynhneigð.

Þetta kemur fram í grein sem Pétur skrifar í vikuritið Akureyri í dag. Hann telur óljóst hvar mörk tjáningarfrelsis liggi og þess vegna kæri hann. Tjáningarfrelsið sé ein af grundvallarreglum stjórnarskrárinnar en það sé ekki óskert. Honum sem sálfræðingi sé til dæmis ekki heimilt að tjá sig opinberlega um málefni sjúklinga sinna og sambærilegar skorður við tjáningarfrelsið séu fjölmargar. Að sama skapi megi ætla að sá sem tekur að sér kennslu í grunnskóla hafi framselt rétt sinn til að tjá skoðanir sem ganga jafn augljóslega gegn hagsmunum hluta nemendahópsins og bloggskrif Snorra geri.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku