KA hafði betur gegn Þór



  • Prenta
  • Senda frétt

Sjöunda umferð 1. deildar karla hófst í kvöld með þremur leikjum.

Akureyrarliðin KA og Þór mættust á KA-velli og unnu heimamenn 3-2 sigur. Haukur Hinriksson, Hallgrímur Mar Steingrímsson og Darren Lough skoruðu mörk KA en Ármann Pétur Ævarsson og Kristinn Þór Björnsson voru með mörk Þórsara.

Fjölnir vann Tindastól 2-0 í Grafarvogi. Bjarni Gunnarsson og Þórir Guðjónsson skoruðu mörk heimamanna.

Þá gerðu ÍR og Þróttur Reykjavík markalaust jafntefli í Breiðholti.

Á morgun mætast Víkingur Reykjavík og Höttur í Fossvogi og Víkingur Ólafsvík tekur á móti Leikni Reykjavík. Umferðinni lýkur svo með leik BÍ/Bolunarvíkur og Hauka á Torfnesvelli á laugardag.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku