Jón Arnór með 16 stig

Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur í liði Zaragoza í kvöld

Jón Arnór Stefánsson skoraði sextán stig og tók sex fráköst fyrir CAI Zaragoza í þriggja stiga sigri liðsins á Asefa Estudiantes 75-72 í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í dag. Jón Arnór var stigahæstur Zaragoza sem vann sinn þriðja sigur í röð og er nú í sjöunda sæti deildarinnar.

Þá skoraði Haukur Helgi Pálsson fjögur stig og tók eitt frákast fyrir Assignia Manresa sem tapaði fyrir Gescrap 88-60 og er nú í tólfta sæti deildarinnar.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku