Jón Arnór: Er stoltur af liðinu



  • Prenta
  • Senda frétt

Jón Arnór Stefánsson var vitanlega hundsvekktur eftir tap íslenska karlalandsliðsins í körfubolta fyrir Svartfjallalandi í kvöld. Leikurinn endaði 101-92 fyrir Svartfellinga en lengst af höfðu Íslendingar þó forystuna í leiknum. Jón Arnór var stigahæstur Íslendinga með 32 stig.

Jón Arnór sagðist vera stoltur af íslenska liðinu þrátt fyrir tapið og að styrkleikamunurinn hefði komið í ljós þegar leið á síðari hálfleikinn.

Sjá má viðtal við Jón Arnór eftir leikinn í dag hér að ofan.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku