Vitringarnir þrír gefa enn gjafir

Vitringarnir gáfu fyrstir manna jólagjafir
Melchor, Gaspar og Baltasar þykja gjafmildir náungar. Gáfu Jesúbarninu gull, reykelsi og myrru en hvað gefa þeir þér? Og hvernig standa þeir sig í samkeppninni við Sankti Kláus?
Kristinn R. Ólafsson sagði frá þessu í Morgunútvarpi Rásar 2.
Víðast hvar á Spáni stendur bardaginn um vinsældir milli vitringanna þriggja frá Austurlöndum sem færa fólki gjafir 6. janúar, á epifaníunni, og hins rauðstakkaða og bómullarskeggjaða Sankti Kláusar af vesturheimskum kókættum. Og þó að kóksypillinn sæki í sig veðrið og geri sig breiðan er það nú einu sinni svo að flestir Spánverjar, segja kannanir, taka þá kumpána Melchor, Gaspar og Baltasar, einsog vitringarnir heita hér í landi, framyfir Santa Claus eða Papa Noel, einsog kókarinn er kallaður uppá innflutta spænsku. Hér suðurfrá eru jólagjafir ekki frá pabba og mömmu, afa og ömmu, Siggu frænku eða Frikka frænda heldur frá vitringunum, eða til vara frá jólasveininum. Eða frá hvorum tveggju. Margir foreldrar með börn á skólaaldri taka það ráð að gefa nokkrar gjafir á jóladagsmorgun svo að krakkarnir hafi jólafríið til að leika sér að nýja dótinu en láta líka vitringana heimsækja fólk og koma með gjafir aðfaranótt 6. janúar og þá yfirleitt aðalgjafirnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







