Páll Óskar í jólaskapi á Rás 2

Páll Óskar Hjálmtýsson hringdi inn jólin á Þorláksmessutónleikum Rásar 2 í beinni útsendingu í Popplandi föstudaginn 23. desember.
Palli söng 7 lög ásamt hljómsveit og með honum spiluðu Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Kjartan Valdemarsson á píano, Róbert Þórhallsson á bassa, Monika Abendroth á hörpu, Arndís Hulda Auðunsdóttir og Margrét Soffía Einarsdóttir á fiðlur, Eydís Ýr Rosenkjær á víólu og Þorgerður Edda Hall á selló. Auk þess tók Sigga Beinteins tvö lög með honum í dúett og ellefu manna kór Fríkirkjunnar tók undir í nokkrum laganna.
Hér má sjá og heyra upptöku af þremur laganna, Þín fyrstu jól, Himinganga og Spaceman Came Travelling. Tæknimenn voru Egill Jóhannsson og Ólafur Thoroddsen en Benedikt Ketilsson, Sigurður Grétarsson og Janus Bragi Jakobsson munduðu myndavélarnar og sá síðastnefndi sá um myndblöndun.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







