Hvíslað í eyra Leppalúða

Jólasveinarnir í Dimmuborgum.

Á ferð um bæinn með þeim Ketkróki og Hurðaskelli kallaði Stúfur alltaf hátt og snjallt að hann þyrfti að pissa, en þeir báðu hann að segja í staðinn að hann þyrfti að hvísla. Þetta olli smá misskilningi hjá Leppalúða eina nóttina sem bað Stúf að hvísla í eyrað á sér.

Dagskrá Leynifélagsfundarins 28.desember 2011.

Fundarstjórar: Kristín Eva Þórhallsdóttir og Brynhildur Björnsdóttir

Ketkrókur og Hurðaskellir koma í heimsókn í Leynilund og segja frá prakkarastrikum þeirra bræðra. Þeir tala einnig um að það sé talsvert erfitt að vera börn Grýlu og þeir reyni reglulega að fá hana ofan af því að borða börn. Allir jólasveinarnir sofa saman í hrúgu eins og grísir í helli Grýlu, segja þeir, en eitt sinn fékk Hurðaskellir sinn eigin helli sem vildi þó svo óheppilega til að kind hafði af honum. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku