Hugið að dýrunum um áramótin

Gleymum ekki þessum dúllum um áramótin!
Áramótin geta reynst dýrum erfið vegna mikillar og langdreginnar notkunar flugelda og sprengiefna, ekki aðeins á gamlárskvöld heldur einnig töluvert um nokkurra daga skeið fyrir og eftir.
Margrét Björk Sigurðardóttir, sem situr í stjórn Dýraverndarsambandsins ræddi þessi mál í Morgunútvarpi Rásar 2. Hún segir koma til greina að gefa dýrum róandi lyf í alvarlegustu tilfellum en þó ekki nema dýralæknir sé með í ráðum.
Flugeldar og sprengingar geta farið mjög illa í dýrin stór og smá, eins og kemur fram í grein á vef Dýraverndarsambandsins. Þar segir: „Vitað er að dýrin hræðast glampana og ekki síst drunurnar frá sprengingunum, sum svo mjög að þau geta farið sér að voða, t.d. hross sem hafa ætt út í ógöngur í fjöllum og klettum. Auk hrossa eru m.a. margir hundar og kettir viðkvæmir fyrir þessum „hamförum“ af manna völdum. Gæta þyrfti meira hófs í flugeldanotkun og draga úr sprengikrafti bombanna sem hefur aukist í seinni tíð og bagalegt er hve margir brjóta settar reglur um notkunartíma flugelda. Fyrr á árum var notkunin svo til alveg bundin við gamlárskvöldið sjálft auk þess sem hávaðinn var minni. Það var hagstæðara dýrunum.
Dýraverndarsamband Íslands telur tímabært að stjórnvöld endurskoði reglur um notkun flugelda og sprengiefnis, af ýmsum ástæðum, svo sem vegna mengunar og slysahættu, auk þass álags sem dýr verða fyrir, einkum í þéttbýli og nágrenni þess.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







