Elskendur flýja réttvísina

Fjalla-Eyvindur Útvarpsleikhúsið 2012
Eftirlýstur maður gerist vinnumaður hjá ríkri ekkju. Þau fella hugi saman og þegar kemst upp um hann, ákveður hann að flýja á fjöll og gerast útilegumaður og ástmey hans flýr með honum.
Ein frægasta ástarsaga Íslands varð skáldinu Jóhanni Sigurjónssyni að yrkisefni í leikritinu FJALLA-EYVINDI. Leikritið var frumflutt í Iðnó fyrir 100 árum og varð upphaf af sigurgöngu skáldsins.
Þessara tímamóta minnist Útvarpsleikhúsið´með flutningi á nýrri útvarpsleikgerð verksins á nýársdag kl. 14 á Rás 1.
Höfundur leikgerðarinnar og leikstjóri er Marta Nordal. Hljóðvinnslu annaðist Einar Sigurðsson.
Með hlutverk elskendanna, Höllu og Kára (Fjalla-Eyvindur), fara Edda Björg Eyjólfsdóttir og Guðmundur Ingi Þorvaldsson. Bjartur Guðmundsson er Arnes útilegumaður og Björn hreppstjóri er leikinn af Valdimar Erni Flygenring.
Leikritið Fjalla Eyvindur eftir Jóhann Sigurjónsson er byggt á samnefndri þjóðsögu og er ein af perlum íslenskra leikbókmennta. Þar segir frá Höllu, ekkju í góðum efnum, sem ræður til sín vinnumanninn Kára. Þau fella hugi saman og hún gerir hann brátt að ráðsmanni sínum en Kári á sér leyndarmál sem reynist þeim örlagaríkt. Þegar Halla kemst að sannleikanum stendur hún frammi fyrir vali. Á hún að flýja til fjalla ásamt ástmanni sínum útskúfuð úr samfélaginu eða lifa áfram í öryggi án ástar?
Fjalla Eyvindur er ein magnaðasta ástarsaga íslensks leiksviðs og fjallar um stórar ástir og miklar fórnir, flókið samband karls og konu sem talar jafn mikið til okkar í dag og það gerði fyrir hundrað árum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







