Jóhanna fundar með sveitarstjórnum
Fyrst birt: 23.02.2012 11:25, Síðast uppfært: 23.02.2012 11:25

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ætlar að halda fund eftir hádegi í dag með 44 sveitarstjórnarfulltrúum alls staðar að af landinu til þess að ræða mál sem snerta hag sveitarfélaganna.
Í kjölfar þess fundar heldur ráðherra sérstakan fund með fulltrúm sveitarfélaganna frá norðvesturlandi til þess að ræða alvarlega stöðu í þeim landshluta. Fólksflótti er þar mikill, sá mesti á landinu öllu. Þetta kom fram í máli forsætisráðherra sem svar við spurningu Einars K. Guðfinnssonar á Alþingi fyrir stundu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







